22. febrúar 2008 klukkan 12:22
Hverjir verða bikarmeistarar árið 2008???
leikurinn verður á sunnudaginn 24.feb kl. 14:00
Allir að mæta og hvetja okkur Haukagellur
Núna er loksins að styttast í leikinn sem við erum búnar að bíða spenntar eftir jíbbí!!!!
jæja stelpur mínar þetta er ekkert flókið! Við vitum alveg hvað við verðum að gera til þess að vinna þennan bikar.... Stöndum saman, spilum sem lið og við verðum að VILJA þetta meira en grindavík. "Við höfum engu að tapa en allt að vinna" ( sara sagði þessa setningu við mig í morgun og mér fannst hún svo nett og mikill sannleikur í henni.. híhíhí)
Haukar bikarmeistarar 2008 ??? þetta hljómar nokkuð vel stelpur er þaggi? komum brjálaðar á sunnudaginn og sýnum hvað í okkur býr.
kv. Bára Fanney Haukar Haukar Haukar
Sara Pálmadóttir
28. janúar 2008 klukkan 11:50
LOKSINS!!! Loksins stelpur!! ...loksins kom langþráður sigur á Keflavík!
Vá hvað það var gaman að lesa í blöðunum
"Haukar unnu Keflavík"..
Vá þetta var ógó gaman!....en núna er það bara að halda áfram og koma aftur svona vel stemmdar til leiks á miðvikudaginn á móti Grindavík! og svo á föstudaginn í bikarnum á móti Fjölni.
Ef við komum svona ákveðnar og með þessa orku og þessa baráttu sem við komum með í gær....þá getum við unnið hvaða lið sem er!
Áfram Haukar.....
Sara Pálmadóttir
25. desember 2007 klukkan 12:01
Hæhæ elskurnar mínar
Ætlaði bara að kasta kveðju á ykkur og segja:
Gleðileg jól og farsælt komandi ár. Takk fyrir allar samverustundirnar á árinu ;)
Sjáumst hressar á æfingu á fimmtudaginn....
...og já....það er víst e-ð bæjarstjórnarthing á fimmtudaginn kl.18 sem við verðum víst að mæta á - meira um það síðar ;)
En hafið það gott yfir hátíðirnar!
Sara Pálmadóttir
21. nóvember 2007 klukkan 08:53
Það er aldeilis, bara komin pressa frá útlandinu um að koma með nýtt blogg ;)
Tímabilið er alveg að ganga ágætlega hjá okkur eins og við vitum...þó við höfum tapað fyrir Keflavík og KR. En það er enginn heimsendir! það er fullt af leikjum eftir og mótið ekki einu sinni hálfnað!
Það er leikur í kvöld á móti Hamri og eins og Yngvi segir þá er sigur auðvitað besta meðalið við tapi! Og auðvitað ætlum við að vinna í kvöld!! það kemur ekkert annað til greina.
Hópurinn þynnist reyndar með hverjum deginum þar sem við erum allmargar meiddar og meiðslalistinn orðinn ANSI hávaxinn! Hvað er málið með öll þessi meiðsli í deildinni???
En við verðum vonandi fljótar að ná okkur ;) Verðum komar á fullt eftir smá tíma.
Annars er voða lítið hægt að segja meira um þetta.....Helena okkar auðvitað að standa sig í USA og Svanhvít nottla á leiðinni heim og svona! þannig að það eru bara allir að standa sig!
En ég ætla hér með að skora á e-a aðra í liðinu að koma með blogg!! það er ENGIN önnur búin að blogga nema ég og Hanna! Þannig að ég skora á ykkur stelpur að koma með eitt....þó það sé ekki nema bara lítið!
En alla vegana....ALLIR AÐ MÆTA Á ÁSVELLI Í KVÖLD KL.18
HAUKAR - HAMAR
Sara Pálmadóttir
30. október 2007 klukkan 16:55
Ég ætlaði bara að láta ykkur vita dúllurnar mínar að ég er komin heim af sjúkrahúsinu

ég mætti í morgun kl. 9 og fékk 3 verkjatöflur og beið svo í smá stund. Svo kom læknirinn og krotaði á mig þar sem skurðurinn átti að koma....og eftir smá stund kom svæfingalæknirinn og talaði við mig og sagðist ætla að koma með kæruleysislyf fyrir mig eftir smá stund. Eftir svona hálftíma kom kona og rúllaði mér inn á skurðstofu og spurði svo hvort að sprautan væri ekki farin að virka.....en ég svaraði henni bara að hún væri ekki farin að virka af því ég væri ekki búin að fá hana!! það gleymdist að gefa mér hana!!
En það reddaðist allt og ég fékk lyf í nálina á hendinni og steinsofnaði innan 10 sek held ég bara. Svo rankaði ég við mér á vöknun eftir svona 1,5 tíma eða e-ð! en ég vaknaði samt bara í svona 5 mín! og sofnaði aftur og var alltaf vaknandi og sofnandi til skiptis þangað til kl. 2 þá var vinkona mömmu komin að sækja mig og ég var látin standa upp og klæða mig en svo var ég bara vinsamlegast beðin um að leggja mig aftur af því ég var eins og skítur í framan eins og hjúkrunarkonan sagði orðrétt ha ha ha ha!
Ég var látin sofa til kl. 4 og fékk þá að fara heim, og er bara fín núna! eða svona.....er ennþá þreytt (sem ég skil reyndar ekki þar sem ég er búin að sofa í 16 klukkutíma!!)

en ég kem ekki í bæinn nógu snemma til að koma á leikinn í kvöld...enda held ég að ég hafi ekki orku í það heldur......en ég hugsa til ykkar dúllurnar mínar! Það er eins gott að þið spilið vel saman og hittið á það í kvöld og spilið besta leikinn í vetur! þó það sé ekki nema bara fyrir mig
Valur - Haukar í Vodafone-höllinni kl. 20 í kvöld! allir að mæta og hvetja Hakastelpurnar! og öskra smá auka fyrir mig!!
Kveðja Sara
Sara Pálmadóttir
17. október 2007 klukkan 13:06
Jæja stelpur.....núna verðum við að fara að hrista okkur saman! 2. umferð í kvöld og við fáum að fara "út á land"!! ferðinni er heitið í Hveragerði og mæting þar er kl. 18:15!
Eru ekki alveg örugglega allar búnar að fá far??
Við verðum alla vega að fara að sýna okkar rétta andlit og spila eins og við getum!! þó það sé ekki nema bara fyrir stoltið okkar!

Alla vega.....Allir að koma og hvetja okkur í Hveragerði í kvöld kl. 19:15!
ÁFRAM HAUKAR!!!
Sara Pálmadóttir
14. október 2007 klukkan 23:18
vildi bara kasta kveðju til ykkar. Ég legg af stað á morgun frá USA og kem aðfaranótt þriðjudags þannig ég mæti "eldhress" á þriðjudagsæfinguna :)
ég spilað með liðinu hérna í St. Andrews 2x og fór á eina drippl/skotæfingu og svo fór ég auðvitað á drippl/skotæfingar ein og hljóp úti þar sem það var springbrake fyrstu vikuna. Var rosa gaman að fá að spila með þessum stelpum og ég stóð mig bara fantavel ;) hérna er ein mynd af körfuboltastelpunum (aðeins 2 þarna sem eru spilandi :))

stelpan lengst til vinstri er center og er rosalega sterk.
stelpan hægra megin við hana er aðstoðarþjálfarinn en spilaði með liðinu í fyrra en er útskrifuð og ætlaði að spila í evrópu en það vantar brjóskið í hnénu og það er svo dýrt að fara í aðgerð þannig körfuboltaferillinn þarf aðeins að bíða, en hún er 22 ára og var sko MJÖG góð!
stelpan hægra megin við hana er dripplari/tvistur og er mjög skemmtileg, er með tónlist í byrjun æfingarinnar og dansar, algjör snelli.
stelpan hægra megin við hana veit ég ekki hver er, mætti á seinni spilaæfinguna og horfði á, þannig ég geri ráð fyrir að hún sé meidd.
náði ekki að smella mynd af öllu liðinu en þetta var skemmtileg reynsla en míns var smá stressuð fyrst að tala við þjálfa hvort ég mætti vera með en þetta var allt í góðu og stelpurnar buðu mér á næstu æfingu eftir fyrstu æfinguna þannig þetta reddaðist allt.
Hlakka til að sjá ykkur ;) farin að sakna "systranna" minna (mætti segja það þar sem maður hefur verið í kringum ykkur svo mikið og svo lengi, þannig þið eruð svona orðnar hluti af fjölskyldunni ;)) ég sé ykkur á þriðjudaginn og kem með ferðasöguna, svo er ég búin að setja þó nokkuð margar myndir á facebook ef þið eruð með það!
kveðja frá St. Andrews laurinburg í North Carolina USA
Hanna
enda með mynd af mér og alfreði ;)


Hanna Sesselja Hálfdanardóttir
12. október 2007 klukkan 15:37
Já það er greinilegt að það eru nú ekki miklir bloggarar í þessu liði með mér!!
Stelpur....það minnsta sem þið getið gert þá...það er að kommenta hérna!
En alla vega...við erum búnar að eiga góða viku....fyrir utan sunnudaginn....þar sem eins og alþjóð veit, töpuðum við á móti Keflavík AFTUR!!......en ef ég fæ e-u um það ráðið þá fá þær ekki fleiri bikara í vetur!

Annars bara æfing í kvöld og fyrsti deildarleikurinn á morgun, þegar KR stelpurnar koma í heimsókn kl. 17 á Ásvelli.
ALLIR AÐ MÆTA!
Skrifa meira eftir helgi....eða kannski ef e-r fær fiðring í puttana.....endilega notið fiðringinn hérna inni stelpur mínar
Sara Pálmadóttir
01. október 2007 klukkan 08:45

Já þetta gekk ekki hjá okkur í gær og Keflavíkurstelpurnar því Powerade-meistarar. En það þýðir ekkert að hætta núna! veturinn er rétt að byrja og þó að við höfum tapað þessum bikar þýðir ekki að það séu ekki eftir nokkrir bikarar í viðbót....sem við að sjálfsögðu ætlum að vinna!
Við verðum að nota þessa viku vel í æfingar og svo spilum við aftur á laugardag við Keflavík í Meistari meistaranna....eins asnalegt og það nú er....en svona er bara lífið stelpur....Við tökum þær bara á laugardaginn! þær fá ekki að hirða fleiri dollur af okkur!
En æfing í kvöld kl. 6....sjáumst hressar þá
Sara Pálmadóttir
30. september 2007 klukkan 10:54
Allir að mæta í Höllina í dag!!
Haukar - Keflavík í úrslitum Powerade-bikarsins kl. 14!
Já við unnum Val á föstudaginn sem þýddi það auðvitað að við erum komnar í úrslit...JEY.....
Við erum að spila í dag kl. 14 í Höllinni og leikurinn er sýndur í TV
En auðvitað er nú miklu skemmtilegra að mæta á leikinn heldur en að horfa einn heima í stofu!
Ég er ekki frá því að það sé komið smá fiðrildi í magann!.....en það er nú bara góðs viti 
Stelpur mætum tilbúnar í dag....og tökum dolluna með okkur heim á Ásvelli!!
Sara Pálmadóttir